Mér finnst mikilvægt að sýna verk mín reglulega og reyni alltaf að hafa eitthvað á prjónunum. Stundum koma sýningar inn með stuttum fyrirvara oft þá samsýningar af einhverju tagi, en stundum er eins og sýning mótist eftir þeim stað sem ég sýni á. Um síðustu helgi opnaði ég sýninguna Himinbogi / Celestial Arc í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg 5. Þar sýni ég um 20 málverk unnin með olíulit og vaxi á tréplötur. Það er ekki tilviljun að ég vel þennan tíma fyrir sýninguna í aðdraganda páska. Verkin innihalda flest hálfjarðneskar verur með skírskotun í goðsögulegan heim undir regnboga, einskonar brú milli heima og vísar í ýmsar áttir en gæti allt eins talað inn í samtímann.
I try to show my work regularly. Sometimes with long planning and clear idea but at times it seems like the work I'm painting chooses it's venue/gallery for some reason. Last saturday I had an opening of my solo exhibition Celestial Arc, at Listhus Ofeigs, a small Gallery at Skólavörðustígur 5 downtown Reykjavik. I like the challange that comes with choosing a subject matter with the method in painting. In this exhibition it is primarily oil color and coldwax on wood plates. An allusion to a mythical world under the rainbow as a bridge between worlds. It points in various directions but could just as well speak into the present.
Sýningin er opin alla virka daga frá 10-18 og á laugardögum 11-16/The exhibition is open every day from 10-6 pm and on saturdays from 11-4pm.
Vinnustofan mín er í gula húsinu á móti bakaríinu/My studio is in the yellow house across the bakery
Fornubúðir 8/My old studio
This is from one of my exhibitions/open house from my old studio that is temporarily in other use.
Um mig / About me
Ég er með langan feril í myndlist. Vinnustofan mín er hreyfanleg og það er hluti af mínu vinnuferli að skoða nýja staði, ferðast, halda sýningar heima og heiman. Stundum á vinnustofum með fleiri listamönnum. Skoða myndlist og er afkastamikill lestrarhestur.
Uppáhald 1 / My favorite 1
Landnám, Olía á striga/The Settler, Oil on Canvas 2015
Uppáhald 2 /My favorite painting 2
Lífsins stig/Stages of life, Olía á tré, Oil on Wood, 2011
Uppáhald 3/My favorite painting 3
Brottför II/Exitus II, Olía og vax á tré/Oil and wax on Wood
Einkasýning / Solo show - Galleri Grotta 2019
Órætt landslag 2019 - Olía og vax á pappír/ Unspoken landscape 2019, Oil and Coldwax on paper.
Svo töfrandi myndir
ReplyDeleteVirkileg falleg sýning Soffía 💕
ReplyDeleteKv, Sigurdís
DeleteSvo falleg verkin þín kæra Soffa
ReplyDeleteMjög falleg sýning, svo gaman að fá fallegt í augun og smá himnafegurð með. Salurinn fer líka verkunum þínum svo vel! Til hamingju!
ReplyDeleteThis comment has been removed by a blog administrator.
ReplyDeleteTakk fyrir þessa gullhamra, var bara núna fyrst að sjá þetta.
ReplyDelete