Monday, March 2, 2026

Sýningarárið 2025 - áform og slaki 2026 / IExhibitions 2025 - intentions and relaxations 2026

Ótrúlega kröftugt myndlistarár 2025 hófst í febrúar með samsýningunni ECHO á Hlöðuloftinu á Korpúlfsstöðum þar sem við sex íslensk/norskar listakonur úr samnefndum hópi fylltum salinn með nýjum verkum. Sjálf var ég með stór verk á tréplötur og á striga og strigaplötur. Vann stóru tréplöturnar á staðnum með kolum, bleki, vatni og handfræsara. Samhliða þessu unnum við allar tvö ný verk í upplagi í grafíkmöppu sem náði utan um listræna sýn okkar á verkefnið og dró fram mismunandi áherslur. Grafíkmappan var sumarsýning á þremur stöðum á Vesturlandi auk opnunar í íslenska sendiráðinu í Osló í nóvember. Þessu sýningarhaldi fylgdu ferðalög og utanumhald sem var skemmtilegt og fjölbreytt. Það er gefandi að starfa í hópi og vinna að ýmsum áformum. Á næsta ári 2027 verðum við með tvær sýningar, í Gallery Briskeby í Osló í janúar og stór sýning í Gallery Nord í Harstadt, Lofoten í maí. Noregur hefur komið mér skemmtilega á óvart, en hef verið þar af og til frá 2023. Vinnustofudvöl á grafíkverkstæði Edward Munch í Ekely í nóvember sl. var alveg frábær viðbót þar sem tími gafst til að skoða og stúdera Edward Munch ásamt flottum söfnum og galleríum í borginni. /A very busy and prospereus exhibition planning/showing/travelling 2025.It is great to work together with a group, though it is time consuming and energy vaccum it gives countless opportunities and keeps you on your toes. Next year we will be showing the Print Folder in Gallery Briskeby, Oslo and a big exhibition in Gallery Nord in Harstadt, Lofoten.I will be making new work for that and a month stay at Edward Munch Grafikatelier in Ekely last November was important in that thinking process. Í október var ég með einkasýninguna Ómur af sumri í Gallerí Fold þar sem ég vann með sumarið, litina, stemminguna, náttúruna. Það er alltaf gaman að fylgja myndunum sínum eftir í galleríinu, og ég sýni þar reglulega. Þar er fjölbreytt úrval verka eftir mig og margir sem koma þangað. Samstarf með sýningarstjóranum Iðunni Vignisdóttur gefandi og öryggi sem fylgir því að þurfa ekki að hugsa um alla hluti sjálf./ A solo Exhibition "Song of land" at Fold Gallery in October. I show my work regularly there, the Curator Iðunn Vignisdóttir is great to work with. Ég hef verið viðloðandi grafíkfélagið lengi og það er svo gott hvað það býður upp á margvísleg tækifæri, samstarf, tengsl og vinskap. Það eru alltaf skemmtilegar sýningar í Grafíksalnum og ekki síst að maður hittir alltaf sýnendur og getur tekið spjall. Það er ótrúlega dýrmætt. Þátttaka í sýningum og viðburðum heldur manni við efnið(grafíkina) og verkstæðið auðvitað lykill að því að vinna fjölbreytt. /The IPA(Icelandic Printmakers Association)is an open opportunity to participate in. I have been involved with the Association for a long time and it has a lot to offer. Vinnustofan í Auðbrekku 1 er svo órjúfanlegur hluti tilverunnar. Rými fyrir sköpun og þróun, hugsun og yfirsýn. Í frábæru kompaníi með gefandi samstarfsfólki sem öll sinna myndlist og eru öflug í sýningarhaldi og myndlist. Við vorum með opið hús á aðventunni og vonandi látum við til skarar skríða aftur á þessu ári. /Studio 4 in Auðbrekka 1 is an integral part of my artist development, it is important to be there every day and open the doors now and then. Hinsvegar er ótrúlega gott að vera með opna dagskrá. Vera með rými til að hugsa, leyfa hlutum að þróast og verða til án þess að vera með sýningu alveg á næstunni. Hverri sýningu fylgir hugmyndavinna, margar myndir sem rata ekki endilega inn eða ná að klárast í tíma og það er svo mikilvægt að gefa sér tíma í að skoða vel það sem er "í pípunum" og leyfa því að koma sem kemur. /It is essential to have time to make progress, get ideas, do nothing or alot. Every exhibiton takes up a certain space in your head and I look forward to do new work.