Þá er ég loks búin að skipuleggja vorið hjá mér og setja niður námskeiðin fram að páskum. Þetta er alltaf svolítið pússl því ég tek þátt í Björtum dögum sem eru oft í kringum Sumardaginn fyrsta og ég þarf að hafa tíma til skipuleggja það líka. /Painting courses at the studio in March. Let me know if you are interested, I will send some translation in english :)
Mér finnst gott að láta byrja með skæra akrílliti og hafa gaman. |
Svo fara verkin að taka á sig mynd.... |
En hér kemur þetta í belg og biðu, ég set þetta líka inn á facebook síðu vinnustofunnar sem viðburð, en skráning fer fram á soffiasaemundsdottir@gmail.com, í s:8987425 eða beint í gegnum fb síðuna. Það þarf að greiða staðfestingargjald(15.000) við skráningu og ef þið viljið taka fleiri en eitt námskeið þá er veittur afsláttur.
*Athugið að hægt að hægt er að fá námskeiðsstyrk hjá stéttarfélögum.
-->
Námskeið I
7. 9.&10. mars
fim, lau, sun
Staður sem er mér kær….
(gatan mín, húsið mitt,
bærinn minn, sveitin mín, herbergið mitt, stofan mín…..)
Kennari: Soffía Sæmundsdóttir
Staður: Fornubúðir 8, 220 Hafnarfjörður
Hvað: Létt og lifandi námskeið í olíumálun fyrir
byrjendur og lengra komna þar sem lögð er áhersla á að vinna með fáa liti og ná
færni í litablöndun. Þátttakendur koma með ljósmynd, skissu eða hugmynd sem
þeir vilja vinna með og fá hjálp við að útfæra viðfangsefnið á striga. Áhersla
á vinnugleði og að taka sig ekki of hátíðlega. Lítill hópur og notalegt
andrúmsloft
Efni: Unnið með akríllitum yfir í olíuliti. Allir
litir og íblöndunarefni(línolía, terpentína) á staðnum en mætið með 1-2 striga
í stærðinni 50x60 eða 60x70, olíuliti(og akrílliti) ef þið eigið þá, 1-3
pensla(nr.10, 12 og breiðan pensil ef þið eigið). Auk þess 2 krukkur með loki.
Fyrirkomulag
7.3. Fimmtudagur 17-19 Stutt kynning á
viðfangsefni, skoðum bækur komum okkur fyrir og spjöllum. Veljum mynd til að
vinna eftir.
9.3. Laugardagur 10-17 Grunnum
striga, ákveðum myndefni í samráði við kennara og hefjumst handa. Málum með
akríllitum og leggjum áherslu á að ná myndefninu á strigann. Notum
olíuliti seinni part dags.
10.3. Sunnudagur 11-17 Málum af gleði og leggjum
síðustu hönd á verkin. Í lok tímans er stutt yfirferð og leiðbeint með
framhald.
15 tímar
Mikið innifalið
Spennandi námskeið í olímálun þar sem unnið er
með viðfangsefni sem er persónulegt og gaman að fast við. Lítill hópur og
notalegt andrúmsloft á vinnustofu listamanns og á stuttum tíma næst mikill
árangur. Hentar þeim sem hafa komið á námskeið áður en líka þeim sem eru að
byrja að mála eða hefur alltaf dreymt um að mála með olíulitum. Góð byrjun og
frábær upprifjun.
Verð: 35.000 (*hægt að skipta greiðslu).
Námskeið II
fim, lau, sun
Allt grænkar../Fjöll og dalir
Kennari: Soffía Sæmundsdóttir
Staður: Fornubúðir 8, 220 Hafnarfjörður
Hvað: Létt og lifandi námskeið í olíumálun fyrir
byrjendur og lengra komna þar sem lögð er áhersla á að vinna með fáa liti og ná
færni í litablöndun. Þátttakendur koma með ljósmynd, skissu eða hugmynd sem
þeir vilja vinna með og fá hjálp við að útfæra viðfangsefnið á striga. Áhersla
á vinnugleði og að taka sig ekki of hátíðlega. Lítill hópur og notalegt
andrúmsloft
Efni: Unnið með akríllitum yfir í olíuliti. Allir
litir og íblöndunarefni(línolía, terpentína) á staðnum en mætið með 1-2 striga
í stærðinni 50x60 eða 60x70, olíuliti(og akrílliti) ef þið eigið þá, 1-3
pensla(nr.10, 12 og breiðan pensil ef þið eigið). Auk þess 2 krukkur með loki.
Fyrirkomulag
14.3. Fimmtudagur 17-19 Stutt kynning á
viðfangsefni, skoðum bækur komum okkur fyrir og spjöllum. Veljum mynd til að
vinna eftir.
16.3. Laugardagur 10-17 Grunnum
striga, ákveðum myndefni í samráði við kennara og hefjumst handa. Málum með
akríllitum og leggjum áherslu á að ná myndefninu á strigann. Notum
olíuliti seinni part dags.
17.3. Sunnudagur 11-17 Málum af gleði og
leggjum síðustu hönd á verkin. Í lok tímans er stutt yfirferð og leiðbeint með
framhald.
15 tímar
Mikið innifalið
Verð: 35.000 (*hægt að skipta greiðslu).
Námskeið
III
12.
og 13. mars
Hraðskissur/Flæði
Kennari: Soffía Sæmundsdóttir
Staður: Fornubúðir 8, 220 Hafnarfjörður
Hvað: Hressandi námskeið fyrir byrjendur og lengra
komna þar sem lögð er áhersla á að temja sér hröð vinnubrögð og ná miklum
árangri á stuttum tíma. Unnið með olíuliti og akrílliti með spaða, palettuhníf
og tusku á pappír, pappaspjöld og strigaspjöld, Áhersla á vinnugleði og að taka
sig ekki of hátíðlega. Lítill hópur og notalegt andrúmsloft
Efni: Allir litir og íblöndunarefni(línolía,
terpentína) á staðnum en ætlast til að þátttakendur komi með annað skv.
efnislista.
Fyrirkomulag
12.3. Þriðjudagur 17-20
- Stutt kynning á viðfangsefninu
- Farið yfir ýmsar gerðir
af pappír og hvað ber að hafa í huga fyrir mismunandi aðferðir og ef á að mála
á hann með olíulitum.
- Farið sérstaklega í
myndbyggingu.
- Skoðum Coldwax og önnur
íblöndunarefni í olíu og akríl sem henta þessari aðferð.
- Grunnum pappír og
spjöld.
13.3. Miðvikudagur 16-20
Málum af gleði, prófum
ýmsar aðferðir sem lagðar voru inn, vinnum nokkrar seríur mynda með mismunandi
áherslum og leggjum síðustu hönd á verkin. Í lok tímans er stutt yfirferð og
leiðbeint með framhald.
7 tímar
Mikið innifalið
Verð 30.000
Olíulitir á pappír |
Litir og litir og litir :) |
Íblöndunarefni..... |
Námskeið
IV
20.
mars
kl.
16-20
Íblöndunarefnin
Kennari: Soffía Sæmundsdóttir
Staður: Fornubúðir 8, 220 Hafnarfjörður
Hvað: Yfirgripsmikið
hnitmiðað námskeið þar sem farið er í ýmsa þætti olíumálunar og uppbyggingu
málverka með áherslu á efnisnotkun, sérstaklega vax(coldwax) en einnig hvaða
efni á að nota til að ná dýpt og lífga upp á málverk. Skoðað hvernig listamenn
nýta sér vax og önnur efni í uppbyggingu málverka og hvaða leiðir eru færar í
því samhengi. Kennsla fer fram í
fyrirlestra og sýnikennsluformi og áhersla á að sýna verk, skoða bækur og
listamenn sem nýta sér íblöndunarefnin.
Námskeiðið hentar
vel fyrir þá sem hafa verið að mála og langar að bæta við sig þekkingu eða
vilja bara sækja sér innblástur.
4 klst.
Kaffi, te og létt
hressing innifalin.
Verð: 15.000
Námskeið
V
22.-24.
mars
Frjáls málun
Námskeið sem
hentar þeim sem hafa verið á námskeiðum áður og langar að hressa sig við, vinna
að því sem er í pípunum eða bara byrja á einhverju nýju í “vernduðu umhverfi”.
Byrjum á “Innblástursflæði” á föstudegi og skoðum bækur með listamönnum sem
hafa áhrif á okkur eða við horfum til. Komum okkur fyrir í salnum og gerum
klárt.
Helgar”workshop”
laugardag og sunnudag frá 10-18 með hádegishléi. Í lokin yfirferð með spjalli
þar sem spáð er í framhald.
Þáttakendur hafa
frjálsar hendur með val á viðfangsefni og mæta með það sem þeir vilja vinna
með. Innifalið er ómælt kaffi, blávatn, lyktarlaus terpentína, einhverjir litir
og grunnar, hreinsiefni og tuskur.
Tími og fyrirkomulag nánar þegar skráningu er lokið.
Verð: 35.000