Monday, July 29, 2013
Sumar 2013
Oft er sumarið tími rólegheita, ferðalög, náttúruskoðun og sveitaferðir taka yfir og lítill tími í listskoðun af einhverju viti. Eftir að hafa haldið sýningu í sal ÍG í byrjun júní og setið yfir henni af miklum móð, staðið fyrir námskeiði og setið við trönurnar við að gera nýjar myndir(meira af því síðar) var gott að taka sér dulítið næði og smella sér norður yfir heiðar. Akureyrar svæðið er smekkfullt af flottri myndlist en tímans vegna sá ég bara "Réttardag" Aðalheiðar í Ketilhúsinu alveg stórskemmtilega innsetningu með mögnuðum skúlptúrum. HInsvegar fór ég á Safnasafnið og var svo heppin að hitta Níels Hafstein sjálfan sem sagði mér eitt og annað skemmtilegt eftir að ég hafði skoðað safnið, sérstaklega litla sýningu með verkum og bókum Karls Dunganon alveg ótrúlega magnaða og skemmtilega upp setta. Þetta hús er fullt af ævintýrum og stutt heimsókn þangað lifir lengi í minningunni og kallar fram bros. Í hvert skipti sem ég kem þar við er eitthvað nýtt að sjá og alltaf langar mig að vera lengur, líta í bók, horfa á lækinn sem rennur fyrir utan gluggann eða skoða listaverkin mögnuð af ýmsu tagi. Níels sagði mér meðal annars af þessu Ingvar Ellert Vignisson - Sýning . Það er gaman að skoða verk hans sem safnið varðveitir og eru til sýnis á vef þess:
