Sendi öllum vinum mínum nær og fjær bestu óskir um gleðileg jól, þakka fyrir frábært samstarf í leik og starfi. Hlakka til að sjá ykkur á nýju ári hjá Málaranum við höfnina þar sem fitjað verður upp á ýmsu skemmtilegu sem betur verður auglýst síðar. Njótið næðis og jóla og takið brosandi á móti nýju ári 2011.
Dear friends
I wish you a very merry christmas and thank for a great year. I look forward to a new exciting year with new adventures. Enjoy the spirit of the season and may the new year bring exciting paths to your life.
Sunday, December 26, 2010
Monday, November 22, 2010
Vetrarstemmingar...tungl og jól
![]() |
| Edwin Church |
![]() |
| Vincent Van Gogh |
![]() |
| C.D.Friedrich |
![]() |
| C.D. Friedrich(1774-1840) |
Wednesday, November 17, 2010
Sænskir málarar og grafíkerar
![]() |
| Verk eftir Mamma Anderson |
Ég var nýverið í Stokkhólmi og skoðaði m.a. Modern Museum þar sem var stór sýning með sænskri samtímalist af ýmsu tagi, ég skoðaði einnig stóra grafík sýningu en þar mátti bæði sjá verk eftir félaga úr sænska grafíkfélaginu(sem hefur um 400 félagsmenn)en einnig eftir þá sem vinna ekki endilega bara í grafík heldur sóttu um að vera tekin inn á sýninguna með grafíkverk. Þetta var stór sýning með fjölmörgum verkum en mér fannst áhugavert hvað viðfangsefnin voru fjölbreytt. Það kom mér í raun á óvart hvað sænsk samtímalist er framsækin. Auðvitað þekki ég td. verk MammaAndersen eins og sjá má hér að ofan en margir samtíma listamenn eru að vinna með málverkið sem miðil á framsækinn hátt. Mér finnst einhver kraftur og spenna í málverkinu, bæði eru verkin oft mjög stór, kannski 2,50 x 3,0 metrar og viðfangsefnið nútímalegt og í takt við samtímann.
Þessi listamaður Mikael Kihlman vinnur td. þessar borgarmyndir í ætingar og vinnur með ljósið og skapar einhverja magnaða stemmingu. Myndirnar verða svo tímalausar.
Málverk Jens Fanges voru ekki mjög stór en litrík og einkennileg með gljáandi áferð.
Viktor Rohsdahl var með nokkur stór mjög dökk málverk unnin með tússi og málningu á striga og gler. Þetta eru mjög áhrifamikil og kraftmikil verk með sterka vísun í hefðina en líka mikil ögrun í því hvernig hann vinnur með efnið því hann teiknar nostursamlega á strigann en veigrar sér svo ekki við að hella málningu yfir hluta af því og halda svo áfram. Með því næst mikil dýpt í myndirnar og teikningin verður mikilvægur þáttur.
Þetta er ekki málverk heldur útstilling í búðarglugga. Hluti af því að ferðast til stórborga er að skoða í búðir og búðarglugga. Þetta er sérbúð með ýmsum böndum, skáböndum, gömlum böndum, borðum, dúskum ofl. Hefði getað eytt drjúgum tíma þarna......
Íslensk grafík í Stokkhólmi
Nýverið opnaði sýning með verkum 13 íslenskra grafíklistamanna hjá Grafiska sellskapet í Stokkhólmi. Þetta er boðssýning á vegum sænska grafíkfélagsins og er haldin í tilefni af 100 ára afmæli þess og er hluti af margvíslegum hátíðahöldum af því tilefni en öllum grafíkfélögum Norðurlanda var boðið að sýna hjá þeim. Undirrituð situr í sýningarnefnd ÍG og hélt utan um sýninguna fyrir hönd íslenskrar grafíkur en sýnendur þóttu gefa góðan þverskurð af því sem er efst á baugi í faginu á Íslandi.
Hér er hlekkur á sýninguna http://www.grafiskasallskapet.se
Hér er hlekkur á sýninguna http://www.grafiskasallskapet.se
Thursday, November 4, 2010
Litafræði - Hluti III
![]() |
| Susan Rothenberg er kraftmikil með einfalt mynefni en litakraftur einkennir þær. |
![]() |
| Joan Mitchell ein af fáum konum sem tilheyrðu abstract expressionistunum. |
![]() |
| Hundertwasser hannaði allt mögulegt....málaði líka. |
![]() |
| Hans Hoffmann var mikilhæfur kennari. |
![]() |
| Gerhard Richter. Með næstum fullkomna tækni. |
![]() |
| Emil Nolde. Alltaf svo gefandi litanotkun. |
![]() |
| Cecily Brown ótrúleg reiða í óreiðunni. Nær því með markvissri litanotkuninni. |
![]() |
| Mamma Andersen er náttúrulega ótrúleg eitthvað svo nútímalega gamaldags í sínum litum en lika hvað hún málar þunnt. |
![]() |
| Monet var nú með litina á hreinu en líka myndefnið sem hann valdi sér. |
![]() |
| Josef Albers var upptekinn af virkni lita |
Wednesday, November 3, 2010
UMBROT - SÝNING
Málverk máluð á tré og striga og tréristur þrykktar á gagnsæjan pappír og límdar saman. Á óvissutímum eru sæfarendur og kærleiksríkir ljósberar uppteknir af voninni sem svífur yfir vötnum við mikil umbrot allt um kring. Ljósgjafinn heldur ljósinu stöðugu en óvíst er hversu lengi það má ganga enn.
![]() |
| Hluti af myndinni Landbrot |
Thursday, October 21, 2010
Okkurgulur
Einn af fyrstu litunum sem maður lærir að þekkja þegar maður fer að mála er okkur litur. Þetta er jarðlitur sem hefur verið þekktur frá steinöld amk. og er í dag eini liturinn sem er notaður hreinn, þ.e. okkurlitur er búinn til úr hreinu jarðefni.
Það má hugsa sér sand eða kletta á Spáni. Okkur getur líka haft á sér rauðan blæ eins og sést á þessari mynd en líka út í græna og jafnvel fjólubláa tóna.
Hér er svo aftur okkur gulur úr litatúbu:
Það má hugsa sér sand eða kletta á Spáni. Okkur getur líka haft á sér rauðan blæ eins og sést á þessari mynd en líka út í græna og jafnvel fjólubláa tóna.
Hér er svo aftur okkur gulur úr litatúbu:
Endurmenntun Háskólans - Tími 1.
Í kvöld var fyrsti tíminn og ég fór í sögu litanna og þróun. Þetta er raunar mjög skemmtileg saga og gaman að velta fyrir sér hvernig litir hafa þróast í gegnum tíðina, hvernig nýjar uppfinningar og landafundir breyttu litanotkun. Gaman að spá í hvernig Loðvík 14, sjálfur Sólarkonungurinn hafði gríðarleg áhrif um gjörvalla Evrópu og lagði nýjar línur í tísku og menningu. Michael Eugéne Chevril kom líka fram með litahringinn í lok 18. aldar og Geroges Seurat lagðist í fræðin og prófaði sig áfram með því að nota punkta og láta þá mætast en blanda litina ekki.
Ég myndi skoða það í góðri bók því þá skila litirnir sér betur en það er samt gaman að sjá alla þessu rauðu tóna sem hann notar. Rafael var örugglega mjög vel að sér í litafræðum og hefr velt mikið fyrir sér hvaða liti ætti að nota en svo hefur hann örugglega líka verið með góðan aðstoðarmann sem hefur malað Cochinal pöddurnar vel. Aztekarnir notuðu rauðan lit og notkun hans var þekkt í Suður Ameríku, en þegar litarefnið var flutt til Evrópu varð rauður litur gríðarlega vinsæll. En kannski voru það einmitt svona snilldarmálverk eins og verkið hans Rafaels sem átti sinn þátt í því. Hér er mynd af Cochinal pöddu og kaktusi þar sem þær þrífast.
Sunday, October 3, 2010
Dagur myndlistar
| af vinnustofunni... |
| gægst inn.... |
| málverk.... |
Monday, September 27, 2010
Dagur myndlistar - Vinnustofa Soffíu - Málarinn við höfnina
| Bjartir dagar 2010 - Huggulegt hjá Málaranum við höfnina - Vinnustofa Soffíu Sæm. |
| Frá Björtum dögum 2010 - Sýningin Sögur - Trúbadorinn Guðrún Hólmgeirsdóttir |
| Frá Björtum dögum 2009 - Sýningin Blikandi haf og sjómannalög í flutningi Signýjar Bergþórs og Reynis |
| Allt á fullu... |
| Í salnum niðri - Teikningar, málverk... |
| Tilbúin sýning 2009 ...eftir að senda út |
Monday, September 20, 2010
Kennslan hefst
| ....lífsins ólgusjór.... |
Sunday, September 19, 2010
Ljóta húfan.....halló halló, er einhver að fylgjast með?
Ég er búin að vera með þess síðu í dálítinn tíma og hef líklega fengið um það bil 10 comment á það sem ég er að gera, einhverjir hafa sagt við mig að þeir hafi séð síðuna og aðrir hafa tjáð sig við mig en ég sakna þess að fá ekki meiri viðbrögð. Svo nú bið ég þig lesandi góður að setja eitthvað gáfulegt í comment...þó ekki væri annað en .....jaá ....ég les þetta stundum...eða asnaleg húfa....
Monday, September 13, 2010
ljós/skuggi
Sunday, September 12, 2010
Hugmyndasmiðjan...
Ég er alltaf eitthvað að spá.
Kannski smá klikk...
Fæ stórar og miklar hugmyndir og skrifa þær niður,
teikna og hanna og skoða og langar og ætla...
En vakna svo næsta morgun
eða kannski bara eftir smástund!
hugsa
æi
þetta var kannski ekkert svo sniðugt.
En núna.
Sit ég á fimmtudögum með fólki sem er eins og ég.
Það er með hugmynd og langar að gera eitthvað við hana.
Ekkert er ómögulegt.
Allt er hægt.
Mín hugmynd er kannski ekkert svo frábær
ekkert svo frumleg
ekkert svo sérstök...
en hún er mín!
...og mér er sagt að það sé allt í lagi að:
láta mína persónu skína í gegn
allt í lagi að segja frá öllu
allt í lagi að gefa allt besta stöffið
en ekki að hringja í fjölmiðla á föstudögum.
Málarinn við höfnina
lifandi vinnustofa
Friday, August 27, 2010
Endurmenntun Háskólans - Litafræði
![]() |
| Þetta er litahringur Goethes. Hann velti mikið fyrir sér áhrifum ljóss og skugga á liti |
Ég mun einnig kenna stutt námskeið hjá Endurmenntunarstofnun sem nefnist Litafræði til gagns og ánægju en þar verður stiklað á stóru um fræði lita og virkni, farið í sögu þeirra og þróun, áhrif þeirra og tákn og er ótrúlega spennandi að setja þessa fyrirlestra saman. Fyrir mig er það óvanalegt að byggja kennsluna eingöngu upp á fyrirlestrum þó ég muni sýna einhver dæmi um litablöndun . Saga litanna er mögnuð þróun menningar og er gaman að lesa um hvernig nýjar uppgötvanir lita og landvinningar kónga skila sér í menningu og listum gegnum aldirnar og hvernig táknfræði lita er mismunandi eftir tíma, menningu og heimshlutum, Litahringurinn er svo í raun afar merkilegt fyrirbæri sem gaman er að velta fyrir sér og hann getur líka verið ótrúlega mikilvægt hjálpartæki þegar kemur að því að raða litum saman. Það er heilmikil heimspeki tengd virkni lita og þó ég fari ekki svo ítarlega í það á námskeiðinu er samt ætla ég að reyna að stikla þar á stóru. Aðalatriðið er að þátttakendur fari út með brennandi áhuga á litum og séu einhvers vísari. Hér er hlekkur á námskeiðslýsinguna. Þetta námskeið hefst 21. október og er þrjú fimmtudagskvöld í röð.
Myndlistarskóli Mosfellsbæjar Haust 2010
| Það er stundum gaman að gleyma sér.... |
| Þarna er verið að vinna með vax. |
Ég mun kenna í Myndlistarskóla Mosfellsbæjar á þriðjudagskvöldum framhaldshópi í málun. Ég hef kennt þar undanfarin 5 ár og haft gaman af. Á síðustu önn var unnið með drauma og hvernig maður skapar draumkennda áferð og kynnti ég vax sem íblöndunarefni í olíulit. Á þessari önn verða litirnir teknir föstum tökum undir yfirskriftinni " Litafræði fyrir lengra komna". Stutt verkefni og löng munu hverfast um liti og þann persónulega litahring sem hver og einn mun vinna samkvæmt minni forskrift. Vanalega er ég með frekar lausbeislað form en að þessu sinni ætla ég að vera með ákveðin verkefni og hlakka til að sjá nemendur mína takast á við þau. Hér er heimasíða skólans. Innritun hefst innan skamms.
| Frá vorsýningu skólans 2010. Veggur með nokkrum verkum nemenda minna. |

























